10. öldin
- 910 Egill Skalla-Grímsson fæðist (ca.)
- 930 Alþingi stofnað
- ----- Landnámsöld lýkur og Þjóðveldisöld hefst
- 940 Þorgeir Ljósvetningagoði Þorkelsson fæðist
- 950 Eiríkur rauði Þorvaldsson fæðist í Noregi
- ----- Þórarinn Ragabróðir Óleifsson lögsögumaður fæðist
- 959 Grímur Svertingsson kvænist Þórdísi stjúpdóttur Egils Skallagrímssonar
- 960 Faðir Eiríks rauða gerður útlægur frá Noregi
- 974 Egill Skallagrímsson flytur að Mosfelli til stjúpdóttur sinnar Þórdísar Þórólfsdóttur
- 981 Kristniboð hefst á Íslandi
- 984 Kirkja á Ási í Hjaltadal vígð
- 985 Eiríkur rauði nemur land á Grænlandi
- ----- Þorgeir Ljósvetningagoði verður lögsögumaður
- 990 Egill Skallagrímsson deyr (ca.)
- 992 Gunnar Hámundarson á Hlíðarenda veginn
11. öldin
- 1000 Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason reisa kirkju í Vestmannaeyjum að undirlagi Noregskonungs
- ------ Kristni lögtekin á Þingvöllum
- 1002 Grímur Svertingsson verður lögsögumaður
- 1005 Fimmtardómur stofnaður
- 1006 Ísleifur Gissurarson, fyrsti biskup Íslands, fæðist
- ------ Eiríkur rauði deyr
- 1010 Njálsbrenna (eða 1011)
- 1020 Fyrsta kirkjan rís á Þingvöllum
- 1021 Komið í veg fyrir að Noregskonungur eignist Grímsey
- 1022 Fyrst alþjóðlegi samningur Íslendinga um gagnkvæm réttindi
- 1024 Magnús góði Noregskonungur deyr
- 1025 Guðmundur ríki á Möðruvöllum deyr
- 1030 Klaustur stofnað á Bæ í Borgarfirði
- ------ Grettir Ásmundarson syndir Drangeyjarsund
- 1031 Grettir Ásmundarson veginn í Drangey
- 1047 Haraldur harðráði verður konungur Noregs
- 1052 Jón Ögmundarson biskup fæðist
- 1056 Ísleifur Gissurarson verður biskup í Skálholti
- 1066 Haraldur harðráði verður konungur Englands
- ------ Haraldur harðráði fellur í orustunni við Standord brú
- ------ Vilhjálmur bastarður nær völdum í Englandi
- 1080 Ísleifur Gissurarson andast
- 1096 Tíundarlög sett
12. öldin
- 1104 Heklugos
- 1106 Biskupsstóll stofnaður á Hólum
- 1108 Úlfhéðinn Gunnarsson kjörinn lögsögumaður
- 1112 Jón Ögmundsson biskup stofnar Þingeyrarklaustur
- 1116 Hvamm-Sturla Þórðarson fæðist
- 1117 Bergþór Hrafnsson verður lögsögumaður
- 1118 Þorlákur Runólfsson vígður Skálholtsbiskup
- ------ Gissur Ísleifsson biskup andast
- 1122 Ritun Íslendingabókar hefst
- ------ Ketill Þorsteinsson vígður Hólabiskup
- 1123 Guðmundur Þorgeirsson verður lögsögumaður
- 1131 Almyrkvi á sólu á Íslandi
- 1133 Munkaklaustur stofnað á Þingeyrum
- ------ Sæmundur fróði Sigfússson andast
- 1134 Magnús Einarsson vígður Skálholtsbiskup
- 1135 Jón Loftsson flytur til Íslands
- ------ Ari sterki Þorgilsson fæðist
- ------ Hrafn Úlfhéðinsson verður lögsögumaður
- 1146 Gunnar Úlfhéðinsson kjörinn lögsögumaður
- 1147 Björn Gilsson vígður Hólabiskup
- 1148 Magnús Einarsson Skálholtsbiskup ferst í Hítardalsbrennu
- 1150 Sturla Þórðarson kaupir Hvamm í Dölum
- 1151 Krísuvíkureldar
- 1152 Klængur Þorsteinsson vígður biskup í Skálholti
- 1154 Vopnaburður bannaður á Alþingi
- 1155 Munkaþverárklaustur stofnað
- ------ Páll Jónsson biskup fæðist
- 1157 Þingeyrarklaustur brennur til kaldra kola
- ------ Fyrsti Suðurlandsskjálftinn sem sögur fara af
- 1158 Gos í Heklu
- ------ Skálholtsdómkirkja vígð
- 1160 Hvamm-Sturla kvænist Guðnýju Böðvarsdóttur
- 1161 Guðmundur góði Arason fæðist
- 1163 Brandur Sæmundsson vígður Hólabiskup
- 1165 Þórður Sturluson fæðist
- 1166 Hítardalsklaustur stofnað (sumir nefna 1168)
- ------ Hrafn Sveinbjarnarson fæðist
- ------ Kolbeinn Arnórsson deyr
- 1168 Þykkvabæjarklaustur stofnað
- 1170 Sighvatur Sturluson fæðist
- 1171 Hvamm-Sturla og Einar Þorgilsson berjast
- ------ Kolbeinn Tumason fæðist
- 1172 Flateyjarklaustur vígt
- 1178 Þorlákur helgi Þórhallsson verður biskup í Skálholti
- 1179 Snorri Sturluson fæðist
- ------ Gos í Kötlu
- 1181 Jón Loftsson tekur Snorra Sturluson í fóstur
- 1183 Hvamm-Sturla andast
- 1184 Flateyjarklaustur flutt til Helgafells
- ------ Tumi Kolbeinsson deyr
- 1186 Kirkjubæjarklaustur stofnað
- 1188 Ari sterki Þorgilsson deyr
- 1190 Ritun Íslendingasagna hefst um þetta leyti
- ------ Jón Loftsson reisir kirkju og klaustur á Keldum
- 1191 Sighvatur Sturluson reisir bæ á Staðarhóli
- ------ Ormur Jónsson frá Svínafelli andast
- 1193 Þorlákur helgi andast
- 1195 Páll Jónsson vígður biskup í Skálholti
- 1197 Lönguhlíðarbrenna
- ------ Jón Loftsson í Odda deyr
- 1199 Snorri Sturluson kvænist Herdísi Bessadóttur
- ------ Sturla Sighvatsson fæðist
13. öldin
(Sturlungaöld)
- 1202 Snorri Sturluson flytur frá Odda að Borg á Mýrum
- 1203 Guðmundur góði Arason tekur biskupsvígslu
- 1206 Guðmundur góði biskup bannfærir Kolbein Tumason (eldri)
- ------ Gos í Heklu
- ------ Eldgos á Reykjanesi
- ------ Snorri Sturluson flytur í Reykholt
- 1208 Víðinesbardagi
- ------ Kolbeinn ungi Arnórsson fæðist
- ------ Gissur Þorvaldsson fæðist
- 1209 Arnór Tumason hrekur Guðmund biskup frá Hólum
- ------ Brandur Kolbeinsson fæðist
- 1210 Þórður kakali Sighvatsson fæðist
- 1211 Suðurlandsskjálftar ríða yfir
- ------ Páll Jónsson biskup andast
- 1213 Þorvaldur Vatnsfirðingur lætur drepa Hrafn Sveinbjarnarson
- 1214 Þorvaldur Vatnsfirðingur gerður útlægur fyrir dráp Hrafns Sveinbjarnarsonar
- ------ Sturla Þórðarson sagnaritari fæðist
- 1215 Sighvatur Sturluson flytur sig í Eyjafjörð
- 1216 Magnús Gissurarson kjörinn biskup í Skálholti
- 1218 Snorri Sturluson heimsækir Skúla jarl í Noregi
- 1220 Snorri Sturluson gerist hirðmaður Noregskonungs
- 1221 Tumi Sighvatsson hrekur Guðmund góða biskup út í Málmey
- 1222 Tumi Sighvatsson drepinn á Hólum
- ------ Guðmundur biskup góði hrakinn frá Hólum
- ------ Gos hefst í Heklu
- 1223 Sturla Sighvatsson kvænist Sólveigu Sæmundardóttur Jónssonar frá Odda
- 1224 Þórdís, dóttir Snorra Sturlusonar, giftist Þorvaldi Vatnsfirðingi
- ------ Ingibjörg Snorradóttir giftist Gissuri Þorvaldssyni
- 1226 Þorvaldur Gissurarson stofnar Viðeyjarklaustur með Snorra Sturlusyni
- 1228 Hallbera dóttir Snorra Sturlusonar giftist Kolbeini unga
- ------ Synir Hrafns Sveinbjarnarsonar brenna Þorvald Vatnsfirðing inni
- 1229 Sauðafellsför sona Þorvaldar Vatnsfirðings
- 1230 Oddur Þórarinsson, Svínfellingur, fæðist
- 1232 Sturla sighvatsson lætur drepa syni Þorvaldar Vatnsfirðings
- 1233 Suðurganga Sturlu Sighvatssonar hefst
- 1235 Sturla Sighvatsson gerist hirðmaður Noregskonungs
- ------ Sturla snýr heim eftir suðurgöngu sína
- 1236 Snorri Sturluson hrakinn frá Reykholti
- 1237 Bæjarbardagi í Borgarfirði
- ------ Snorri Sturluson hrakinn til Noregs
- ------ Guðmundur góði Arason biskup andast
- ------ Magnús Gissurarson Skálholtsbiskup andast
- ------ Þórður Sturluson goðorðsmaður á Stað andast
- 1238 Fundur Sturlu Sighvatssonar og Gissurar Þorvaldssonar við Apavatn (Apavatnsför)
- ------ Örlygsstaðabardagi
- 1239 Snorri Sturluson snýr heim í óleyfi konungs
- 1240 Hákon Noregskonungur skipar Gissuri Þorvaldssyni að drepa Snorra Sturluson
- ------ Ingibjörg Sturludóttir Þórðarsonar fæðist
- ------ Gos hefst í Kötlu
- 1241 Snorri Sturluson veginn í Reykholti
- ------ Klængur Bjarnason, stjúpsonur Snorra, veginn í Reykholti
- ------ Órækja Snorrason lætur drepa Illuga son Þorvaldar Vatnsfirðings
- 1242 Skálholtsbardagi milli Órækju Snorrasonar og Gissurar Þorvaldssonar
- ------ Óræka og Sturla Þórðarson hraktir úr landi
- 1244 Tumi Sighvatsson yngri drepinn á Reykhólum
- ------ Flóabardagi
- ------ Sólveig Sæmundardóttir andast
- 1245 Gos í Kötlu
- ------ Hrafn Oddsson kvænist dóttur Sturlu SIghvatssonar
- ------ Kolbeinn ungi andast 37 ára gamall
- 1246 Haugsnesbardagi (Brandur Kolbeinsson drepinn)
- 1247 Þórður kakali snýr heim frá Noregi
- ------ Halldóra Tumadóttir, ekkja Sighvatar Sturlusonar, andast
- 1248 Sæmundur Ormsson frá Svínafellli kvænist Ingunni, dóttur Sturlu Þórðarsonar
- 1249 Gissur Þorvaldsson fer í suðurgöngu til Rómar
- 1250 Þórður kakali fer til Noregs og á ekki afturkvæmt til Íslands
- 1251 Sturla Þórðarson verður lögsögumaður
- 1252 Noregskonungur sendir Gissur Þorvaldsson og Þorgils skarða til Íslands
- 1253 Flugumýrarbrenna
- 1254 Hákon gamli kallar Gissur Þorvaldsson út til Noregs
- 1255 Oddur Þórarinsson drepinn í Geldingaholti
- ------ Þverárbardagi (fundur) í Eyjafirði
- ------ Eyjólfur ofsi Þorsteinsson veginn í Þverárbardaga
- 1256 Sturla Þórðarson sest að í Svignaskarði
- 1258 Þorgils skarði drepinn á Hrafnagili
- ------ Gissur Þorvaldsson verður jarl yfir Íslandi
- 1259 Gissur Þorvaldsson sest að á Reynistað í Skagafirði
- 1262 Fyrstu höfðingjarnir undirrita Gamla sáttmála
- ------ Gos í Kötlu
- ------ Sturlungaöld lýkur
- 1263 Hrafn Oddson hrekur Sturlu Þórðarson úr landi
- 1264 Gamli sáttmáli fullgiltur
- 1268 Gissur Þorvaldsson andast
- 1269 Staðamál hin síðari hefjast
- 1270 Hrafn Oddson og Ormur Ormsson skipaðir hirðstjórar yfir Íslandi
- 1271 Járnsíða lögtekin á Íslandi (að hluta)
- ------ Embætti sýslumanna stofnuð
- ------ Lögmenn settir yfir hvern landsfjórðung
- 1272 Sturla Þórðarson verður lögmaður alls landsins
- 1273 Endurbætt Járnsíða lögtekin
- 1281 Jónsbók tekur við af Járnsíðu sem lögbók Íslands
- 1284 Sturla Þórðarson sagnaritari og lögmaður andast
- 1289 Hrafn Oddsson hirðstjóri andast
- 1294 Jarðskjálfti ríður yfir Suðurland
- 1295 Reynistaðaklaustur stofnað
- ------ Möðruvallaklaustur líklega stofnað (eða 1296)
- 1297 Staðamálum lýkur
14. öldin
(Norska öldin)
- 1300 Heklugos hefst
- 1301 Hallæri vegna Heklugoss
- ------ Jarðskjálftar á Suðurlandi
- 1302 Gamli sáttmáli endursvarinn
- ------ Verlsun takmörkuð við norsk skip
- 1304 Árni Helgason vígður biskup í Skálholti
- 1305 Íslendingar neita að borga Noregskonungi skatt
- 1308 18 bæir hrundu í Suðurlandsskjálfta
- 1309 Klængskirkja í Skálholti brennur
- 1311 Skattbændatal telur 3812 bændur
- ------ Gos í Kötlu
- ------ Árnakirkja í Skálholti vígð
- ------ Jarðskjálfti á Suðurlandi fellir 51 bæ
- 1312 Lárentíus Kálfsson gerist kennari í Munkaþverárklaustri
- 1313 Miklar frosthörkur um land allt
- 1314 Auðunn rauði vígður Hólabiskup
- 1315 Bygging Auðunarstofu hefst á Hólum
- 1316 Möðruvallaklaustur brennur
- 1317 Ný kirkja vígð á Ingjaldshóli
- 1318 Auðunarmáldagi gerður
- 1319 Grímur Þorsteinsson verður lögmaður
- ------ Magnús Eiríksson sameinar Noreg og Svíþjóð undir einum konungi
- 1320 Hafís við Íslands langt fram á sumar
- ------ Ketill Þorláksson verður hirðstjóri
- 1322 Jón Halldórsson vígður biskup í Skálholti
- 1324 Lárentíus Kálfsson verðu biskup á Hólum
- 1326 Elliheimili fyrir uppgjafapresta stofnað á Kvíabekk í Ólafsfirði
- 1329 Fyrsta orgelið kemur til Íslands
- 1331 Egill Eyjólfsson verðu Hólabiskup
- 1339 Suðurlandsskjálfti fellir um 50 bæi
- 1341 Gos í Heklu
- ------ Bótólfur Andrésson verður hirðstjóri
- 1343 Grímur Þorsteinsson verðu hirðstjóri
- ------ Jón Sigurðsson verður biskup í Skálholti
- ------ Jón biskup lætur brenna nunnu úr Kirkjubæjarklaustri
- 1346 Bessastaðir verða aðsetur hirðstjóra
- 1349 Gyrir Ívarsson verður biskup í Skálholti
- 1350 Ólafur Bjarnason verður hirðstjóri yfir öllu Íslandi
- 1354 Ívar Hólm Vigfússon verður hirðstjóri og tekur Ísland á leigu
- 1357 Gos í Kötlu
- 1358 Jón skalli Eiríksson verðu biskup á Hólum
- 1360 Norðlenskir bændur hrekja Jón Skráveifu burt úr fjórðungnum
- 1361 Smiður Andrésson verðu hirðstjóri
- ------ Einokunarverslun fyrri komið á
- 1362 Jón skráveifa fellur í Grundarbardaga
- ------ Mikið öskugos úr Öræfajökli leggur Litlahérað í eyði
- 1363 Skarðsbók Jónsbókar skrifuð
- 1366 Oddgeir Þorsteinsson verðu biskup í Skálholti
- 1368 Guðný Helgadóttir abbadís í Reynistaðaklaustri andast
- 1370 Þorgautur Jónsson verður hirðstjóri
- ------ Síðustu heimildir um skip á Gásum
- 1375 Skálholtssamþykkt gerð
- 1380 Ísland kemst undir Danakonung
- 1381 Guttormur Ormsson veginn í Snóksdal
- 1387 Ritun Flateyjarbókar hefst
- 1388 Eiríkur Guðmundsson hirðstjóri veginn
- 1389 Gos hefst í Heklu
- 1390 Jarðskjálftar á Suðurlandi
15. öldin
(Enska öldin)
- 1402 Svarti dauði berst til landsins
- 1406 Norskur munkur vígður biskup í Skálholti
- ------ Margrét Vigfúsdóttir fæðist
- 1411 Jón Tófason vígður Hólabiskup (kemur til starfa 1419)
- 1412 Enskra skipa fyrst getið í annálum
- ------ Einar Herjólfsson veginn á Skúmsstöðum
- 1413 Árni Ólafsson vígður biskup í Skálholti og hirðstjóri
- 1415 Enska öldin hefst
- ------ Eiríkur af Pommern bannar útlendingum siglingar til Íslands
- 1416 Eldgos hefst í Heklu
- 1420 Englendingar ræna og rupla í Skagafirði
- 1421 Möðruvallakirkja brennur
- 1424 Farsóttir herja á landann
- 1425 Enskir duggarar handtaka hirðstjórana og flytja til Noregs
- 1427 Guðmundur ríki Arason fer ránshendi um Húnaþing
- 1429 Klaustur og kirkja brenna á Munkaþverá
- 1430 Jón Gerreksson Skálholtsbiskup kemur til landsins
- 1431 Áttatíu enskir duggarar drepnir við Mannskaðahól í Skagafirði
- 1432 Fyrsta skip Hansakaupmanna kemur til landsins
- ------ Jón Gerreksson handtekur þorvarð Loftsson og Teit Gunnlaugsson
- ------ Sveinar Jóns Gerreksson drepa Ívar Hólm Vigfússon
- ------ Ormur Loftssson verður hirðstjóri
- 1433 Jóni Gerrekssyni drekkt í Brúará
- 1436 Margrét Vigfúsdóttir og Þorvarður Loftsson ganga í hjónaband
- 1437 Gozewijn Comhaer skipaður Skálholtsbiskup
- 1439 Gos í Heklu
- 1442 Kristófer af Bæjaralandi krýndur konungur í Noregi
- 1446 Guðmundur ríki Arason dæmdur útlægur
- 1447 Fyrsta enska skipið tekið fyrir ólöglegar veiðar
- 1449 Danmörk og England gera samning um veiðar Englendinga við Ísland
- 1450 Langaréttarbót samþykkt af Kristjáni I Danakonungi
- 1452 Munkaþverárklaustur kaupir Gásir
- 1455 Björn Þorleifsson og Ólöf ríka handtekin af skoskum sjóræningjum
- 1457 Björn Þorleifsson verður hirðstjóri
- 1460 Marcellus Skálholtsbiskup drukknaði við Sviðþjóð
- ------ Ólafur Rögnvalssson verður biskup á Hólum
- 1462 Jón Stefánsson Krabbe varð biskup í Skálholti
- 1465 Leyfi Englendinga til Íslandssiglinga felld úr gildi
- 1467 Björn Þorleifsson hirðstjóri veginn af ensku sjómönnum á Rifi
- 1468 Hansakaupmenn hefja verslun á Íslandi
- ------ Eldgos í Veiðivötnum
- ------ Kristófer Kólumbus er mögulega á landinu
- 1478 Diðrik Píning verður hirðstjóri
- 1479 Ólöf ríka á Skarði andast
- 1482 Fyrst getið um byssur á Íslandi
- 1484 Jón Arason biskup fæðist
- 1485 Kötlugos hefst
- 1486 Englendingar ræna Hansakaupfari
- ------ Margrét Vigfúsdóttir deyr
- ------ Þorleifur Björnsson hirðstjóri deyr
- 1490 Danakonungur semur við Englendinga um fiskveiðar við Ísland
- 1491 Stefán Jónsson verður biskup í Skálholti
- 1492 Jörðin Skriða í Fljótsdal gefin undir klausturhalds
- 1493 Skriðuklaustur stofnað
- 1494 Plágan síðari gengur yfir
- 1496 Gottskálk Nikulásson verður Hólabiskup
- ------ Páll Jónsson sýslumaður á Skarði drepinn á Öndverðareyri
- 1499 Benedikt Hersten verður hirðstjóri
16. öldin
(Þýska öldin)
- 1503 Kai von Ahlefeldt verður hirðstjóri á Íslandi
- 1502 Lénharður "fógeti" drepinn á Hrauni í Ölfusi
- 1505 Kai von Ahlefeldt dæmdur frá hirðstjórn á Íslandi
- 1510 Gos hefst í Heklu
- 1511 Englendingar hertaka Hamborgarskip við Ísland
- 1512 Englendingar vinna spellvirki á Íslandi
- 1513 Leiðarhólmsbænarskjalið sent konungi
- 1517 Týli Pétursson verður hirðstjóri
- 1518 Hamborgarkaupmenn hrekja Englendinga frá Hafnarfirði
- ------ Stefán Jónsson biskup andast
- 1519 Ögmundur Pálsson kjörinn biskup í Skálholti
- 1521 Hannes Eggertsson verður hirðstjóri yfir Íslandi
- 1523 Týli Pétursson hálshöggvinn í Kópavogi
- 1524 Jón Arason vígður biskup á Hólum
- ------ Jóhann Pétursson verður hirðstjóri yfir Íslandi
- 1526 Alþingi samþykktir launagreiðslur til bartskera fyrir læknastörf
- 1527 Útlendingum bannað að stunda útgerð frá Íslandi
- 1528 Enskir kaupmenn ræna Hamborgarskip á Rifi á Snæfellsnesi
- 1529 Dietrich van Bramstedt skipaður hirðstjóri á Íslandi
- 1530 Fyrsta prentsmiða landsins sett upp á Hólum í Hjaltadal
- 1532 Grindarvíkurstríðið
- 1533 Fyrsta Lútherska kirkjan rís í Hafnarfirði
- 1535 Prentsmiðjan á Hólum flutt að Breiðabólsstað í Vesturhópi
- 1537 Sigmundur Eyjólfsson vígður Skálholtsbiskup
- 1539 Claus van der Marwitzen hirðstjóri kemur til landsins
- ------ Viðeyjarklaustur rænt af Diðrik frá Mynden
- ------ Diðrik frá Mynden drepinn í Skálholti
- 1540 Gissur Einarsson verður biskup í Skálholti
- 1541 Guðbrandur Þorláksson biskup fæðist
- 1550 Jón Arason biskup handtekinn á Sauðafelli
- ------ Jón Arason biskup og synir hálshöggnir í Skálholti
- ------ Þingeyrarklaustur lagt niður
- 1551 Nunnuklaustrið á Reynistað lagt niður
- 1552 Skriðuklaustur lagt niður
- 1555 Fyrsta íslenska sálmabókin gefin út í Kaupmannahöfn
- 1556 Oddur Gottskálksson drukknar í Laxá í Kjós
- 1557 Gísli Jónsson vígður biskup í Skálholti
- 1559 Páll Stígsson verður hirðstjóri
- 1564 Stóridómur samþykktur á Alþingi
- 1565 Danakonungur staðfestir Stóradóm
- 1568 Arngrímur lærði Jónsson fæðist
- 1569 Christoffer Valkendorf skipaður höfuðsmaður á Íslandi
- 1570 Johann Bockholt verður hirðstjóri á Íslandi
- 1571 Guðbrandur Þorláksson vígður Hólabiskup
- 1574 Fermingar teknar upp á Íslandi
- 1576 Fyrsta íslenska almanakið prentað
- 1578 Fyrsta prentun Jónsbókar
- 1579 Hansakaupmenn fá fyrsta verlunarleyfið
- 1580 Gos hefst í Kötlu
- 1581 Mikill jarðskjálfti ríður yfir Suðurland
- 1584 Guðbrandsbiblía prentuð
- 1585 Guðbrandur Þorláksson lætur gera Íslandskort
- 1586 Reistur skans í Vestmannaeyjum
- 1588 Lauritz Tygesen Kruse verður höfuðsmaður á Íslandi
- 1589 Oddur Einarsson veður Skálholtsbiskup
- 1590 Fyrstu konunni drekkt í Drekkingarhyl
- 1593 Rit Arngríms lærða, Brevis commentarius de Islandia, kemur út í Kaupmannahöfn
- 1595 Brostrup Giedde verður hirðstjóri á Íslandi
- 1596 Axlar-Björn líflátinn á Laugarbrekkuþingi
- 1597 Eldgos hefst í Heklu
- 1598 Eldgos hefst í Grímsvötnum
- 1599 Guðsorðabókin Eintal sálarinnar kemur út
17. öldin
- 1602 Íslandsverslun leigð til tólf ára
- 1605 Rit Jóns Egilssonar um Skálholtsbiskupa kemur út
- 1607 Furðurit um Ísland kemur út á latínu
- 1609 Arngrímur lærði gefur út varnarrit fyrir Ísland á latínu
- 1614 Enskir víkingar fara með ofbeldi og ránum í Vestmannaeyjum
- 1615 Rúmlega 30 Spánverjar drepnir á Vestfjörðum
- 1617 Mannskæð bólusótt berst til landsins
- 1619 Gos hefst í Heklu
- 1620 Guðbrandur biskup dæmdur á Öxarárþingi
- 1624 Dómkirkjan á Hólum fýkur í ofviðri
- 1625 Gos hefst í Kötlu
- ------ Maður brenndur fyrir galdra í Svarfaðardal
- 1627 Ræningjar frá Algeirsborg herja á Austurland, Grindavík og Vestmannaeyjar
- ------ Guðbrandur biskup Þorláksson andast
- 1628 Fyrstu Íslendingarnir koma til baka frá Algeirsborg
- 1630 Skálholtsstaður brennur til kaldra kola
- ------ Miklir jarðskjálftar á Suðurlandi
- ------ Oddur biskup Einarsson andast
- 1631 Gísli Oddsson kosinn Skálholtsbiskup
- 1648 Sveinn skotti hengdur á Barðaströnd
- ------ Kristján konungur IV andast
- ------ Séra Arngrímur Jónsson andast
- 1649 Hinrik Bjálki skipaður höfuðsmaður (hirðstjóri) á Íslandi
- 1651 Brynjólfur biskup lætur byggja dómkirkju í Skálholti
- 1653 Háeyrarflóðið
- 1654 Þrír menn brenndir á báli fyrir galdra í Trékyllisvík
- 1656 Þorlákur biskup Skúlason á Hólum andast
- ------ Kirkjubólsmálið
- 1660 Gos hefst í Kötlu
- 1661 Ragnheiður Brynjólfsdóttir sver fyrir mök við karlmenn
- 1662 Ragnheiður Brynjólfsdóttir elur barn hennar og Daða Halldórssonar
- ------ Kópavogsfundurinn
- 1663 Ragnheiður Brynjólfdóttir andast
- 1665 Snorra-Edda kemur út í fyrsta skipti á prenti
- ------ Fyrsta dauðfallið vegna plágunnar miklu skráð í London
- 1667 Hollenskt Indíafar (gullskipið) strandar á Skeiðarársandi
- 1669 Hansasambandið heldur sinn síðasta fund
- 1670 Kristján V konungur Íslands og Danmerkur
- 1674 Séra Hallgrímur Pétursson andast
- ------ Páll Björnsson prófastur skrifar bókin Kennimark kölska.
- 1675 Brynjólfur biskup Sveinsson andast
- 1677 Grenjadals-Tobbi brenndur fyrir að eiga galdrakver
- 1682 Tyrkja-Gudda (Guðríður Símonardóttir) andast
- 1683 Síðasta galdrabrennan (á Langadalsströnd)
- 1684 Gísli biskup Þorláksson andast
- ------ Jón Hreggviðsson dæmdur til dauða fyrir morð á Sigurði Snorrasyni böðli
- 1685 Prentsmiðjan á Hólum flutt í Skálholt
- 1686 Konungsbréf bannar aftökur fyrir galdra
- 1688 Landnáma prentuð í fyrsta sinn í Skálholti
- 1693 Heklugos hefst
18. öldin
- 1703 Fyrsta manntal á Íslandi tekið
- 1704 Síðasta aftaka Kópavogsþing (sjá færsluna Hjónadysjar)
- 1707 Bólusótt (Stórabóla) berst til landins og drepur 18000 manns
- ------ Oddur Sigurðsson skipaður varalögmaður norðan og vestan
- 1708 Jón Magnússon bannar Jörfagleði (sjá færsluna Jörfi)
- ------ Oddur Sigurðsson skipaður fulltrúi Stiftamtsmanns á Íslandi (ásamt Páli Beyer)
- 1714 Oddur Sigurðsson tekur við lögmannsembættinu af Lauritz (Lárusi) Gottrup
- 1717 Eldgos hefst í Kverkfjöllum
- 1720 Jón biskup Vídalín andast við Hallbjarnarvörður
- 1724 Eldgos hefst í Mývatnssveit
- 1726 Eggert Ólafsson fæðist
- 1727 Gos hefst í Öræfajökli
- 1728 Stór hluti Kaupmannahafnar brennur
- 1730 Árni Magnússon handritasafnari andast
- 1735 Krafist er af prestum að þeir haldi prestþjónustubækur (kirkjubækur)
- 1741 Oddur Sigurðsson frv. lögmaður andast að Leiru í Borgarfirði
- 1751 Hutafélag um viðreisn íslensks efnahags stofnað á Þingvöllum
- ------ Bygging tauvefstofu "Innréttinganna" hefst
- 1752 Innréttingarnar fá mikinn fjárstuðning frá Danmörku
- 1754 Viðeyjarstofa byggð að frumkvæði Skúla fógeta
- ------ Finnur Jónsson vígður biskup í Skálholti
- 1755 Gos í Kötlu hefst
- ------ Gísli Magnússon verður biskup á Hólum
- 1757 Hörmangarar afsala sér Íslandsverslun
- 1759 Bjarni Pálsson lýkur fyrstur Íslendinga læknaprófi
- 1760 Landlæknisembætti stofnað á Íslandi
- ------ Séra Björn í Sauðlauksdal hefur kartöflurækt
- ------ Fjárkláði veldur miklu tjóni hér á landi
- 1761 Bygging Nesstofu hefst
- 1762 Fjalla-Eyvindur og Halla handtekin á Ströndum
- ------ Síðasta aftaka fyrir sifjaspell samkvæmt Stóradómi
- 1763 Ný dómkirkja vígð á Hólum í Hjaltadal
- 1764 Innréttingarnar seldar
- 1765 Arnes Pálsson dæmdur í ævilanga þrælkun
- 1766 Gos hefst í Heklu
- ------ Friðrik V Danakonungur andast
- ------ Magnús Gíslason amtmaður andast
- ------ Bessastaðastofa tekin í noktun
- 1767 Eggert Ólafsson kvænist Ingibjörgu Guðmundsdóttur frá Ingjaldshóli
- ------ Byggingu Nesstofu lýkur
- 1768 Eggert Ólafsson drukknar á Breiðafirði
- ------ Jón Eiríksson gefur út rit um viðreisn Íslands
- ------ Rannveig Egilsdóttir lýkur fyrst íslenskra kvenna ljósmóðurprófi
- 1769 Íslendingar taldir 46201
- ------ Jón Espólín fæðist
- 1770 Landsnefnd (hin fyrri) um viðreisn Íslands stofnuð
- ------ Byggingu typtunarhúss (tugthúss) á Arnarhóli lýkur
- 1772 Fjalla-Eyvindur og Halla handtekin á Sprengisandi
- 1773 Prentsmiða stofnuð í Hrappsey
- 1778 Sjálfsvíg Miklabæjar-Sólveigar
- 1780 Ferðabók Ólafs Olaviusar kemur út
- ------ Reynistaðabræður verða úti á Kili
- ------ Fyrsta íslenska barnabókin kemur út
- 1781 Póstskip ferst með allri áhöfn við Ölfusárósa
- ------ Björn í Sauðlauksdal gefur út bókina Grasnytjar
- 1783 Gos hefst í Lakagígum
- 1784 Miklir jarðskjálftar á Suðurlandi leggja Skálholt í rúst
- 1785 Bólusótt berst til landsins
- ------ Hannes Finnson verður biskup í Skálholti
- 1786 Einokunarverslun Dana aflétt
- ------ Séra Oddur á Miklabæ hverfur
- ------ Hólavallaskóli vígður
- ------ Reykjvík fær kaupstaðaréttindi
- 1787 Jón Eiríksson konferensráð andast
- 1789 Jarðskjálftahrina á Suðurlandi
- ------ Sigurður Stefánson verður biskup á Hólum
- ------ Síðasta aftakan í Skagafirði og næstsíðasta aftakan á Íslandi
- 1790 Ólafur Stefánsson verður fyrsti íslenski stiftamtmaðurinn
- 1791 Fyrsti næturvörðurinn í Reykjavík skipaður
- ------ Hið norðlenska lestrarfélag stofnað (undanfari Amtbókasafnsins)
- 1792 Natan Ketilsson fæðist
- 1794 Hið íslenska landsuppfræðingafélag stofnað
- ------ Skúli Magnússon fógeti andast
- 1795 Vatnsenda-Rósa fæðist
- ------ Mikill bruni í Kaupmannahöfn
- 1796 Dómkirkjan í Reykjavík vígð
- ------ Fyrsta íslenska leiksýningin sett upp í Hólavallaskóla
- 1797 Eldgos í Grímsvötnum
- ------ Geir Vídalín vígður Skálholtsbiskup
- ------ Árni Magnússon frá Geitastekk snýr heim eftir 44 ára flakk um heiminn
- 1798 Síðasti fundur Alþingis á Þingvöllum
- ------ Sigurður Breiðfjörð rímnaskáld fæðist
- 1799 Básendaflóðið
19. öldin
- 1800 Einfalt matreiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur kemur út
- 1801 Manntal tekið. Íslendingar tæplega 48 þúsund.
- ------ Hólastóll lagður niður
- ------ Landsyfirréttur tekur við hlutverki Lögréttu
- 1802 Morðin á Sjöundá
- ------ Tómthúsbýlið Skuggi reist í Reykjavík
- 1803 Reykjavík fær eigin bæjarfógeta
- ------ Konungur staðfestir dauðadóm yfir Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur
- ------ Magnús Ketilsson sýslumaður deyr
- ------ Ullarverksmiðjurnar í Aðalstræti lagðar niður
- 1804 Tómas Klog skipaður landlæknir
- 1805 Latínuskólinn flyst til Bessastaða
- 1807 Tómas Sæmundsson Fjölnismaður fæðist
- ------ Jónas Hallgrímsson skáld og Fjölnismaður fæðist
- 1808 Konráð Gíslason Fjölnismaður fæðist
- ------ Jón Espólín fæðist
- 1810 Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður fæðist
- 1811 Jón Sigurðsson fæðist á Hrafnseyri
- 1812 Sektir fyrir barneignir ógifts fólks aflagðar
- 1815 Ríkisbankadalur verður gjaldmiðill á Íslandi
- ------ Hið íslenska biblíufélag stofnað
- 1816 Manntal tekið
- ------ Hið islenska bókmenntafélag stofnað
- ------ Eldgos í Grímsvötnum
- ------ Oddur Hjaltalín settur landlæknir
- 1820 Langefortov (steinstétt) sett í Austurstræti
- ------ Jón Thorstensen verður landlæknir
- 1821 Eldgos í Eyjafjallajökli
- ------ Fyrsta bindi af Árbókum Espólíns kemur út
- 1823 Eldgos í Vatnajökli
- 1826 Jón Borgfirðingur fæðist
- ------ Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal fæðist
- ------ Benedikt Sveinsson fæðist
- 1827 Skírnir kemur út
- 1828 Morðin á Illugastöðum
- 1829 Þrír þjófar hýddir opinberlega á Austurvelli af böðli bæjarins
- 1830 Síðasta aftakan á Íslandi fer fram í Vatnsdalshólum
- 1829 Arngrímu málari fæðist
- 1833 Sigurður Guðmundsson málari fæðist
- 1835 Tímaritið Fjölnir hefur göngu sína
- ------ Matthías Jochumsson fæðist
- 1838 Harðir jarðskjálftar á Suður- og Norðurandi.
- ------ Hólavallakirkjugarður tekinn í notkun
- 1840 Sveinn Pálsson læknir og náttúrufræðingur fæðist
- 1841 Tilskipun um flutning Latínuskólans til Reyjavíkur
- 1844 90 hús talin í Reykjavík
- ------ Síðustu Geirfuglarnir veiddir í Eldey
- ------ Símon Dalaskáld fæðist
- 1845 Endurreist Alþingi heldur fyrsta fund sinn í húsi Lærða skólans
- ------ Heklugos hefst
- ------ Jónas Hallgrímsson skáld deyr
- 1846 Lærði skólinn í Reykjavík vígður
- ------ Bein Reynistaðabræðra finnast
- ------ Björn Jónsson ráðherra fæðist
- ------ Reykjavíkurpósturinn hefur göngu sína
- 1849 Fyrsta fæðingarheimili á Íslandi opnar í Vestmannaeyjum
- 1850 Fyrstu erfðalögin taka gildi
- ------ Skáldsagan Piltur og stúlka kemur út
- 1851 Þjóðfundurinn í sal Lærða skólans í Reykjavík
- 1852 Sveinbjörn Egilsson rektor andast
- 1855 Prentfrelsi leitt í lög
- ------ Verslunareinokun á Íslandi aflétt
- ------ Fjárkláði berst til landins í annað skiptið
- 1856 Biskupssetrið flutt úr Laugarnesi
- ------ Jónas frá Hrafnagili fæðist
- ------ Bríet Bjarnhéðinsdóttir fæðist
- ------ Elín Briem fæðist
- 1857 Gerð krafa um íslenskukunnáttu danskra embættismanna
- ------ Fyrst hópur mórmóna flytur til Vesturheims
- ------ Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum fæðist
- ------ Jón Sveinsson rithöfundur fæðist
- 1858 Gufuskipasiglingar til Íslands hefjast
- 1861 Hannes Hafstein fæðist
- 1862 Barnaskóli Reyjavíkur tekur til starfa
- 1864 Efnt var til samskota í Reykavík til þess að koma upp sjúkrahúsi
- 1868 Kumlateigur fannst við Hafurbjarnarstaði á Reykjanesi
- ------ Fyrsti sparisjóðurinn stofnaður á Seyðisfirði
- ------ Jón Thoroddssen skáld andast
- 1872 Fyrsti landritarinn skipaður
- ------ Konungleg póststofa sett á fót í Reykjavík
- ------ Sparisjóður Reykjavíkur stofnaður
- ------ Blaðið Göngu-Hróflur hefur göngu sína
- 1873 Hilmar Finsen tekur við starfi landshöfðingja
- ------ Fyrstu íslensku frímerkin gefin út
- ------ Blaðið Víkverji stofnað
- 1874 "Svellaveturinn mikli"
- ------ Íslendingar fagna 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar
- ------ Kristján IX færir Íslendingum fyrstu stjórnarskrána
- ------ Sigurður Guðmundsson málari andast
- ------ Jón Árnason tekur við forngripasafninu
- ------ Alþýðubókin eftir Þórarinn Böðvarsson í Görðum kemur út
- 1876 Fyrsta götulýsingin í Reykjavík (við brúna í Bankastræti)
- ------ Eldgos í Vatnajökli
- ------ Læknaskólinn tekur til starfa
- ------ Fyrsta ljóðabók eftir íslenska konu, Júlíönu Jónsdóttur, kemur út
- ------ Íslenska krónan tekin í gildi
- ------ Skáldsagan Maður og kona kemur út
- ------ Lúðrafélag Reykjavíkur stofnað
- ------ Ásgrímur Jónsson listmálari fæðist
- ------ Sigfús Eymundsson opnar ljósmyndastofu
- 1877 Ísafoldarprentsmiðja stofnsett
- ------ Fyrstu kvennaskólarnir á Íslandi stofnaðir
- 1878 Síre Ottesen andast
- 1879 Jón Sigurðsson andast
- 1880 Útför Jóns Sigurðssonar og konu hans Ingibjargar Einarsdóttur
- ------ Hornsteinn lagður að Alþingisshúsinu við Kirkjustræti
- ------ Möðruvallaskóli stofnaður
- ------ Bændaskólinn í Ólafsdal stofnaður
- 1881 Sveinn Björnsson forseti fæðist
- 1883 Gestur Pálsson gefur út Suðra
- 1885 Mannskætt snjóflóð á Seyðisfirði
- ------ Jóhannes Kjarval fæðist
- 1886 Magnús Stephensen verður landshöfðingi
- ------ Stórstúka Íslands stofnuð
- ------ Landsbanki Íslands stofnaður
- ------ Sigurður Nordal fæðist
- ------ Útgáfa 5, 10 og 50 króna seðla hefst
- 1887 Eitt mesta hafísár við Íslandsstrendur
- ------ Síðasti torbærinn í Kvosinni, Lækjarkot, rifið.
- 1888 Fyrstu bæjarstjórnarkosningar á Íslandi með þátttöku kvenna
- ------ Þórbergur Þórðarson skáld fæðist
- 1889 Gunnar Gunnarsson skáld fæðist
- 1891 Verslunarmannafélag Reykjavíkur stofnað
- ------ Ölfusárbrú vígð
- ------ Stýrimannaskólinn í Reykjavík tekur til starfa
- ------ Muggur fæðist
- 1892 Ólafur Thors fæðist
- ------ Héðinn Valdimarsson fæðist
- ------ Loftur Guðmundsson ljósmyndari fæðist
- 1894 Hið íslenska kvenfélag stofnað
- ----- Sjómannafélagið Bára stofnað
- 1896 1300 bæir skemmast í Suðurlandsskjálfta
- 1897 Leikfélag Reykjavíkur stofnað
- ------ Prentarafélag Íslands stofnað
- 1899 Fótboltafélag Reykjavíkur stofnað
- ------ Jón Leifs fæðist
- ------ Jóhannes úr Kötlum fæðist
20. öldin
- 1900 Karl Ottó Runólfsson tónskáld fæðist
- 1901 Þjóðhátíð haldin í fyrsta skipti í Vestmannaeyjum
- ------ Tómas Guðmundsson skáld fæðist
- ------ Kristmann Guðmundsson skáld fæðist
- 1902 Sambandskaupfélag Þingeyinga stofnað
- ------ Fyrst íslenski vélbáturinn verður til
- ------ Landakotsspítali reistur
- ------ Franski spítalinn við Lindargötu reistur
- ------ Halldór Laxness fæðist
- ------ Tryggvi Emilsson rithöfundur fæðist
- ------ Einar Olgeirsson ritstjóri fæðist
- ------ Emil Jónsson forsætisráðherra fæðist
- 1903 Húsið Glasgow brennur til kaldra kola
- ------ Knattspyrnufélag Vestmannaeyja stofnað
- 1904 Bannað að reisa torfbæi í Reykjavík
- ------ Hannes Hafstein verður ráðherra
- ------ Íslandsbanki (gamli) tekur til starfa
- ------ Fyrsti bíllinn kemur til landsins
- ------ Trésmiðjan Völdundur stofnuð
- ------ Prentsmiðjan Gutenberg stofnuð
- ------ Iðnskólinn í Reykjavík tekur til starfa
- ------ Gunnlaugur Scheving listmálari fæðist
- ------ Guðmundur Böðvarsson skáld fæðist
- 1905 Verzlunarskóli Íslands stofnaður
- 1906 Verkamannafélagið Dagsbrún stofnað
- ------ Ingvarsslysið
- ------ Landsími Íslands tekur til starfa
- ------ Eysteinn Jónsson ráðherra fæðist
- ------ Friðrik VIII verður konungur
- ------ Reglulegar kvikmyndasýningar hefjast í Reykjavík
- 1907 Kvenréttindafélag Íslands stofnað
- ------ Heimsókn Friðriks VIII
- ------ Ný fræðslulög sett
- ------ Ungmennafélag Íslands stofnað
- ------ Giftar konur verða kjörgengnar til sveitarstjórnar í Reykjavík
- ------ Sjálfstæðisflokkur (eldri) stofnaður
- ------ Kleppsspítali tekur til starfa
- 1908 Fyrstu leynilegu Alþingiskosningarnar haldnar
- ------ Bjarni Benediktsson fæðist
- ------ Þjóðaratkvæðagreiðsla um áfengisbann
- 1909 Vatnsveita Reykjavíkur tekur til starfa
- 1910 Öflugur jarðskjálfti í Öxarfirði
- ------ Gasstöð Reykjavíkur tekur til starfa
- ------ Heilsuhælið á Vífilsstöðum opnar
- ------ Dagblaðið Vísir hefur göngu sína
- 1911 Háskóli Íslands stofnaður
- 1912 Stór jarðskjálfti á Suðurlandi
- ------ Jón Borgfirðingur deyr
- ------ Björn Jónsson deyr
- ------ Friðrik VIII deyr
- ------ 12 hús brunnu á Akureyri
- 1913 Einar Pétursson flaggar bláhvíta fánanum í Reykjavíkurhöfn
- ------ Morgunblaðið hefur göngu sína
- 1914 Sigurður Eggerz verður Íslandsráðherra
- ------ Knud Zimsen kjörinn borgarstjóri
- ------ Eimskipafélag Íslands stofnað
- ------ Verkamannafélagið Framsókn stofnað
- 1915 Áfengisbann lögleitt
- ------ 12 hús brenna í miðbæ Reykjavíkur
- ------ Íslenskar konur frá kosningarétt
- ------ Jóhann Hafstein forsætisráðherra fæðist
- 1916 Alþýðuflokkurinn stofnaður
- ------ Framsóknarflokkurinn stofnaður
- ------ Konur kjósa í Alþingiskosningum í fyrsta sinn
- ------ Alþingiskosningar
- ------ Kristján Eldjárn fæðist
- ------ Skúli Thoroddsen deyr
- 1918 Frostaveturinn mikli
- ------ Ísland verður fullvalda ríki
- ------ Spánska veikin berst til landsins
- ------ Gos hefst í Kötlu
- 1919 Ljósmæðrafélag Íslands stofnað
- ------ Fyrsta flug á Íslandi
- ------ Barn náttúrunnar kemur út
- ------ Alþýðublaðið hefur göngu sina
- ------ Félag íslenskra hjúkrunarkvenna stofnað
- ------ Landsyfirréttur lagðu niður og Hæstiréttur stofnaður
- ------ Saga Borgarættarinnar kvikmynduð
- 1920 Veðurstofa Íslands tekur til starfa
- ------ Guðjón Samúelsson skipaður húsameistari ríkisins
- 1922 Ingibjörg H. Bjarnason kosin á þing fyrst íslenskra kvenna
- ------ Vinna hefst við Flóaáveitu
- ------ Hannes Hafstein andast
- ------ Gos í Grímsvötnum
- 1923 Alþýðubókasafn Reykjavikur tekur til starfa
- ------ 1. maí kröfugangan fer fram í fyrsta sinn
- 1924 Bréf til Láru kemur út
- 1926 Fyrsta útvarpsstöðin hefur göngu sína
- ------ Björk K. Þorláksdóttir ver doktorsritgerð við sorbonne háskóla
- ------ Jón Þorláksson verður forsætisráðherra
- 1927 Ferðafélag Íslands stofnað
- 1928 Slysavarnarfélag Íslands stofnað
- 1930 Búnaðarbanki Íslands tekur til starfa
- ------ Hotel Borg opnar
- ------ Alþingishátíðin á Þingvöllum
- ------ Kvenfélagasamband Íslands stofnað
- ------ Ríkisútvarpið tekur til starfa
- ------ Vigdís Finnbogadótti fæðist
- ------ Kommúnistaflokkur Íslands stofnaður í Fjalakettinum
- 1931 Alþingiskosningar
- ----- Eimskipafélag Reykjavíkur stofnað
- ------ SPRON stofnað
- ------ Gúttóslagurinn
- 1933 Alþingiskosningar
- 1934 Dalvíkurskjálftinn
- ------ Alþingiskosningar
- ----- Jónas frá Hriflu verður formaður Framsóknarflokksins
- 1937 Alþingiskosningar
- 1938 Tímarit Máls og menningar stofnað
- ------ Guðrún Lárusdóttir þingmaður drukkna í Tungufljóti
- ------ Tímaritið VIkan hefur göngu sína
- ------ Sameiningarflokkur alþýður - Sósíalistaflokkurinn stofnaður
- ------ Mæðiveikisgirðingar setta upp
- 1940 Einar Benediktsson grafinn í Þjóðargrafreitnum á Þingvöllum
- ------ Bretar hernema Íslands
- ------ Þórbergur Þórðarson gefur út Ofvitann
- ------ Bríet Bjarnhéðinsdóttir andast
- ------ Aðalbygging Háskóla Íslands vígð
- 1942 BSRB stofnað
- ------ Fyrsta ríkisstjórn Ólafs Thors mynduð
- ------ Coka-cola stjórnin tekur við völdum
- ------ Bókaútgáfan Helgafell stofnuð
- 1943 Ólafur Ragnar Grímsson fæðist
- 1944 Ísland lýsir yfir sjálfstæði frá Danmörku
- ------ Sveinn Börnsson kjörinn fyrsti forseti landsins
- 1945 Jóhannes Kjarval opnar málverkasýningu í Listamannaskálanum
- ------ Verzlunarskólinn útskrifar fyrstu stúdentana
- 1946 Alþingiskosningar
- 1947 Gos í Heklu
- ------ 25 manns farast í flugslysi í Héðinsfirði
- ------ Stytta af Snorra Sturlusyni afhjúpuð í Reykholti
- ------ Haukur Clausen verður Norðurlandameistari í 200 metra hlaupi
- ------ Breski togarinn Dhoon ferst við Látrabjarg
- 1949 Fyrsta íslenska kvikmyndin í fullri lengd frumsýnd
- ------ Átök á Austurvelli vegna ingöngu Íslands í NATO
- ------ Alþingiskosningar
- 1950 Þjóðleikhúsið tekur til starfa
- ----- Nýr Gullfoss kemur til landsins
- 1952 Sveinn Björnsson andast
- 1953 Alþingiskosningar
- 1955 Halldór Laxness hlýtur Nóbelsverðlaun í bókmenntum
- 1956 Alþingiskosningar
- 1957 Fyrstu stöðumælarnir settir upp í Reykjavík
- ------ Brekkukotsannáll eftir Halldór Laxness kemur út
- 1958 Fiskveiðilögsagan færð út í 12 mílur og þorskastríð hefst
- ------ BHM stofnað
- ------ Ríkisstjórn Emils Jónssonar tekur við völdum
- 1959 Alþingiskosningar samkvæmt nýrri kjördæmaskipun
- ------ Viðreisnarstjórnin tekur við völdum
- 1960 Fyrsta Keflavíkurganga hernámsandstæðinga
- 1961 Bjarni Benediktsson verður formaður Sjálfstæðisflokksins
- ------ Gos í Öskju
- 1963 Alþingiskosningar
- ------ Surtsey ris úr sjó
- ------ Bjarni Benediktsson verður forsætisráðherra
- 1966 Fyrsta íslenska sjónvarpsútsendingin
- 1967 Þrjú hús brenna á horni Vonarstrætis og Lækjargötu
- ------ Fyrsta íslenska sjónvarpsleikritið frumsýnt
- ------ Alþingiskosningar
- ------ 14-2 tap fyrir Dönum í knattspyrnu
- ------ Flatey á Skjálfanda ferð í eyði
- ------ Fyrsta Hagkaupsverslunin opnar
- ------ Síldarkreppan hefst
- 1968 Hægri umferð tekin upp
- ------ Kristján Eldjárn kosin forseti
- 1970 Ísland gengur í EFTA
- ------ Eldgos í Heklu
- ------ Led Zeppelin með tónleika í Laugardalshöll
- ------ Bjarni Benediktsson ferst í eldsvoða á Þingvöllum
- ----- Stífla í Laxá í Aðaldal sprengd í loft upp
- ------ Menntaskólinn á Ísafirði stofnaður
- 1971 Mesta frost í Reykjavík síðan 1918
- ------ Landssöfnun til að kaupa uppstoppaðan geirfugl
- ------ Fyrstu íslensku handritin koma til landsins frá Danmörku
- ------ Viðreisnarstjórnin féll í Alþingiskosningum eftir 12 ára valdasetu
- ------ Fyrsta ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar tekur við
- 1972 Fiskveiðilögsagan færð í 50 mílur
- ------ Robert Fischer sigrar Boris Spassky í skák í Laugardalshöll
- ------ Helgi Hóseasson sletti skyrinu