Leiðarhólmur í Miðdölum

Málverk Collingwood

Leiðarþing á miðöldum

Leiðarhólmur er grasi vaxin eyri í Miðá sunnan við Harrastaði. Hér voru haldin leiðarþing á miðöldum að loknu þinghaldi á Þingvöllum í þeim tilgangi að upplýsa íbúa um það sem gerst hafði á Alþingi. Talið er að leiðarþingin hafi lagst af á 15. öld.

Bænarskjal til konungs

Í upphafi 16. aldar náðu völd kaþólsku kirkjunnar í veraldlegum efnum hæstu hæðum hér á landi og fannst höfðingjum landsins að nú væri mælirinn fullur. Árið 1513 hittust hér 26 veraldlegir leiðtogar af Norðurlandi, úr Dölum og frá Vestfjörðum í þeim tilgangi að semja yfirlýsingu og bænarskjal til Kristjáns II Danakonungs. Í bænarskjalinu var ofríki biskupanna í Skálholti og á Hólum mótmælt, einkum ótæpilegri valdbeitingu biskupanna, ósanngjörnum sektum og jafnvel lögbrotum. Óskaði hópurinn eftir liðsinni konungs við að stemma stigu við þessum yfirgangi kirkjunnar. Í bók sinni Bannfæring og kirkjuvald á Ísland 1275-1550 fjallar dr. Lára Magnúsdóttir sagnfræðingur um Leiðarhólmsbænarskjalið í tengslum við deilur leikmanna og kirkjuvalds í aðdraganda siðaskiptanna.

 

Skildu eftir svar