Hverfisgata 83 í Reykjavík

 

Fyrsta fjölbýlishúsið

Hér var fyrsta fjölbýlishúsið á Íslandi reist, Bjarnaborgin. Húsið byggði Bjarni Jónsson (1859-1915) snikkari og húsasmiður á árunum 1901-1902. Í fyrstu voru herbergi og íbúðir í húsinu leigð út en árið 1916 keypti Reykjavíkurborg húsið og fékk fátækranefnd borgarinnar húsið til umráða. Fram undir 1930 leigði nefndin efnalitlu fólki herbergi eða íbúðir í húsinu en eftir 1930 fór að draga úr þörfinni fyrir svona úrræði. Áfram var húsið þó nýtt í félagslegum tilgangi en smám saman breyttist íbúahópurinn og meira fór að bera á óreglufólki í hópi íbúa.

Iðnnemabústaður

Árið 1987 keypti byggingarfélagið Dögun húsið af Reykjavíkurborg og var húsið notað undir íbúðir fyrir iðnnema á árunum 1994-2003. Þá keyptu Félagsbústaðir hf, hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, húsið. Er húsið því enn á ný nýtt sem félagslegt leiguhúsnæði á vegum Borgarinnar.

Um Bjarna Jónsson

Bjarni Jónsson var umfangsmikill athafnamaður á sínum tíma og er talið að hann hafi byggt a.m.k. 140 hús í Reykjavík. Eftir 1909 fór að halla undan fæti hjá Bjarna og lést hann 56 ára gamall eftir langvarandi veikindi, slyppur og snauður (Hrefna Róbertsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Sagnir, 1. tbl. 1985).

 

Skildu eftir svar