Skólabrú
Skólabrú var steinbogabrú yfir lækinn sem rann úr norðausturhorni Reykjavíkurtjarnar til sjávar. Brúin var byggð árið 1846 í framhaldi af byggingu Lærða skólans og var lengi ein af þremur eða fjórum brúm yfir lækinn sem allar hurfu þegar lækurinn var byrgður árið 1912/13. Nafnið Skólabrú færðist einnig yfir á götuspottann sem lá frá brúnni í átt að Dómkirkunni. Á móts við Bókhlöðustíg var brú sem gekk undir nafninu Skálholtsbrú og við enda Austurstrætis, gegnt bakarabrekku (Bankastræti), var önnur steinbrú yfir lækinn. Sjá einnig færsluna Lækurinn.
Smella hér til að skoða götumynd á google.com.

