Lambastaðir í Laxárdal
Hér bjó Þorbjörn Skrjúpur og kona hans Melkorka Mýrkjartansdóttir og sonur þeirra Lambi eftir dauða þeirra. Melkorka var írsk ambátt af konungsættum sem eignaðist Ólaf pá með Höskuldi Dala-Kollssyni. Ólafur pái kvæntist Þorgerði Egilsdóttur, dóttur Egils Skallagrímssonar á Borg í Borgarfirði, og áttu þau Kjartan Ólafsson sem Guðrún Ósvífursdóttir lét mann sinn og uppeldisbróður Kjartans, Bolla Þorleiksson, drepa.