Örlygsstaðir í Skagafirði

Mynd ESSBALD

Örlygsstaðir eru eyðibýli í landi Víðivalla í Skagafirði. Þann 21. ágúst 1238 fór hér fram fjölmennasti bardagi Íslandssögunnar, Örlygsstaðabardagi, en talið er að allt að 2500 menn hafi tekið þátt í bardaganum.

Örlygsstaðabardagi

Í bardaganum lutu Sturlungar, undir forystu feðganna Sighvats Sturlusonar og Sturlu Sighvatssonar, í lægra haldi fyrir fjölmennu liði Kolbeins unga og Gissurar Þorvaldssonar. Féllu þeir feðgar ásamt þremur öðrum sonum Sighvats en fimmti sonurinn var drepinn nokkrum árum síðar. Í liði Sturlunga féllu einnig synir Hrafns Sveinbjarnarsonar frá Eyri (Hrafnseyri) við Arnarfjörð. Talið er að Sighvatur og synir hans hafi verið grafnir í Sturlungareit á Munkaþverá í Eyjafirði nema Kolbeinn Sighvatsson sem grafinn var heima á Grenjaðarstað í Þingeyjarsýslu. Um Örlygsstaðabardaga má lesa í Íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar sem tók þátt í bardaganum en var þyrmt. Árið 1988 var reistur minnisvarði um bardagann í landi Víðivalla.

Smella hér til að skoða götumynd á google.com

Skildu eftir svar