Svínadalur

Málverk Collingwood

Svínadalur liggur milli Hvammssveitar og Saurbæjar í Dalasýslu. Í Svínadal réðst Bolli Þorleiksson, að undirlagi eiginkonu sinnar Guðrúnar Ósvífursdóttur, á fóstbróður sinn og frænda Kjartan Ólafsson og réð honum bana með hjálp mága sinna frá Laugum. Kjartan var þá á heimleið úr Saurbænum. Með þessum gjörningi framdi Guðrún Ósvífursdóttir eitt mesta níðingsverk sem fornsögur Íslands greina frá, ekki aðeins gagnvart Kjartani Ólafssyni heldur einnig gagnvart eiginmanni sínum Bolla. Vilja sumir meina að orð Guðrúnar, „Þeim var ég verst er ég unni mest“ eigi við um Bolla en ekki Kjartan.

 

Skildu eftir svar