Sálnahliðið í Vestmannaeyjum
Sálnahliðið að Landakirkjugarði varð eitt af þekktustu myndefnunum í Heimaeyjargosinu 1973. Bogalagað hliðið gnæfði til himins með krossinn efstan og eldspúandi gíg í bakgrunni. Letrið á boganum, Ég lifi og þér munuð lifa, fékk nú aukna merkingu í baráttu manns og náttúru. Kirkjugarðurinn hvarf smám saman undir farg svarts vikurs, líf og dauði tókust á og mannanna verk urðu stundum lítilvæg í þeirri ógn, sem vofði yfir. En sálnahliðið stóðst svartnætti gosefnanna, sem aldrei náðu að kaffæra skilaboðin á þvi: Ég lifi og þér munuð lifa.